Langar þig að vinna spennandi lokaverkefni með beina tengingu við atvinnulífið á Vestfjörðum? Markmiðið með “Hafsjó af hugmyndum” er að styrkja lokaverkefni sem skapa aukin verðmæti úr sjávarauðlindinni samhliða eflingu atvinnulífs á Vestfjörðum. Um er að ræða nýsköpunarstyrki til háskólanema við gerð lokaverkefna í mastersnámi. Hafsjór af hugmyndum er styrkt af Sjávarútvegsklasa Vestfjarða en styrkurinn er margþættur.
- Fjárhagslegur
- Miðlun upplýsinga og reynslu frá sjávarútvegsfyrirtækjunum
- Útvega hráefni þegar við á.
- Útvega aðstöðu þegar við á.
- Skapar tengsl milli háskólanema og atvinnulífsins.
Styrkjunum er ætlað að gefa nemendum spennandi innsýn í ný verkefni í vestfirskum sjávarútvegi og sjávarsamfélögunum á Vestfjörðum. Þetta er þriðja árið sem styrkirnir eru veittir og unnin hafa verið verkefni um; hvernig við getum tengt saman erlenda og innlenda foreldra til að bæta stöðu barna í sjávarþorpum, klasa og samkeppni, örplast í makríl, framleiðslu á Kambucha tei með þörungum, nota þörunga til að hreinsa frárennslisvatn, vinnsla á kítósan úr rækjuskel, vernda villt dýralíf, plast í umhverfinu og loðnu og að lokum hraðferja með flutninga frá Vestfjörðum á höfðuborgarsvæðið.
Í ár verða valin 3-7 lokaverkefni og hægt er að sækja um styrk á bilinu 250.000-750.000 kr eftir verkefnum. Skilafrestur er 1. júní 2022.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð eru aðgengileg á slóðinni: Hafsjór af hugmyndum | Vestfjarðastofa (vestfirdir.is).
Allar nánari upplýsingar veitir Guðrún Anna Finnbogadóttir auk þess að aðstoða nemendur við að tengjast réttu samstarfsaðilunum í netfanginu: gudrunanna@vestfirdir.is.
Hvetjum háskólanema á framhaldsstigi til að sækja um og nýta tækifærið til að vinna lokaverkefni í beinum tenglsum við atvinnulífið á Vestfjörðum. Þeir fiska sem róa.