Í dag er alþjóðlegur dagur læsis og af því tilefni komu nemendur Grunnskólans á Suðureyri í heimsókn í fiskvinnsluna Íslandssögu og lásu sögur og ljóð fyrir starfsfólkið. Eldri nemendur lásu ljóð en yngri nemendur sögur. Lesið var bæði á íslensku og pólsku. Það er alltaf gaman að fá nemendur skólans í heimsókn, og þakkar starfsfólk Íslandssögu kærlega fyrir sig.