Næg atvinna hefur verið hjá fiskvinnslunni Íslandssögu í sumar og hefur ekkert verið stoppað frekar en undanfarin sumur.
Heimakrakkar frá 15 ára aldri fengu vinnu í sumarfríi sínu frá skóla og stóðu þau sig vel eins og áður. Unnin hafa verið rúm 1300 tonn af ýsu, þorski og steinbít í júní, júlí og það sem af er ágúst og hefur það að mestu leyti farið á markaði í Bretlandi og Bandaríkjunum.
Gæftir hafa verið ágætar hjá bátunum okkar eftir einn erfiðasta vetur í manna minnum en þá féllu margir dagar úr vegna brælu á miðunum. Einnig hefur verið keypt töluvert á mörkuðum og af strandveiðibátum sem réru frá Suðureyri. Þegar þetta er skrifað er nægur fiskur og mikil vinna framundan þessa vikuna.